All Collections
Um Verna
Hvers vegna og hvernig vinnur Verna með TM?  
Hvers vegna og hvernig vinnur Verna með TM?  
V
Written by Verna
Updated over a week ago

Verna er tryggingatæknifélag sem framleiðir og þjónustar snjalltryggingar sem seldar eru til neytenda. Við völdum TM sem okkar vátryggjanda vegna vilja TM í að styðja okkur í endurhugsa og þróa virkni trygginga og þjónustu þeim tengdum upp á nýtt. Verna starfar sem umboðsaðili TM en erlend tryggingatæknifélög eins og Verna stofna nær alltaf til slíks samstarfs í stað þess að sækja um eigin leyfi þar sem það þarf mikla fjármuni til þess að stofna nýtt tryggingafélag. Ávinningur viðskiptavina af slíku samstarfi er hraðari framþróun lausna, aukið gagnsæi, bætt þjónusta og lækkun kostnaðar með aukinni sjálfvirknivæðingu. Á sama tíma tryggir samstarfið við TM öryggi þeirra fjármuna sem viðskiptavinir treysta okkur fyrir. Í grunninn snúast tryggingar um að ótengdir aðilar taki höndum saman til að verja hvorn annan fyrir mögulegum afleiðingum áfalla. Því felst ákveðið skjól og öryggi í samstarfinu og baklandinu sem viðskiptavinahópur TM veitir.

Verna er framleiðandi og eigandi vörunnar sem þú ert að kaupa en TM er vátryggjandinn sem tryggir öryggi fjármuna sem viðskiptavinir treysta okkur fyrir. Verna sér um markaðssetningu, sölu, áhættumat, skráningu allra tjóna, úrlausn tjóna sem bíllinn þinn verður fyrir og greiðslu allra bóta til viðskiptavina. Í tilfelli viðkvæmustu tjónanna, þar sem slys verða á fólki, koma sérfræðingar TM að úrlausn þeirra.

Did this answer your question?