Heldur Vörður áfram að nota ökuskor til að ákvarða kjör?
Nei, þar sem Vörður notar ekki ökurita verður ökuskor í Verna-appinu ekki lengur virkt eftir 1. febrúar 2026 og hefur því ekki áhrif á verð ökutækjatrygginga þinna.
Iðgjöld Varðar ráðast af nokkrum þáttum. Ef þú ert með fleiri tryggingar hjá Verði getur það til dæmis haft áhrif til lækkunar á iðgjöldum.
