Það getur komið fyrir að ferð sem á heima í akstursbókinni er ekki að finna í appinu, en þú græjar það með því að bæta henni við handvirkt.
Byrjaðu á því að velja punktana uppi í hægra horninu
Veldu að bæta við handvirkt.
Veldu bílnúmerið sem ferðin á að skrást á.
Settu inn dagsetningu ferðar.
Ýttu á tilgang ferðarinnar.
Veldu hvaðan og hvert var farið og staðfestu km fjölda.
Ýttu svo á vista ferð og ferðin birtist í akstursyfirliti.